Spartl og lagfæringar
Við undirbúum veggina fyrir málun, allt frá spartli á samskeyti gipsplatna til endurbóta á gömlum veggjum.

Góð málun byrjar á góðum vegg. Við spartlum heila fleti eða bara samskeyti gipsplatna, og lögum sprungur og ójöfnur í leiðinni.
Gamla veggi skröpum við, lögum sprungurnar og réttum af yfirborðið.
Verkin sem við vinnum
- Spartl á veggi og loft
- Samskeyti gipsplatna: net og tvær umferðir af massa
- Viðgerðir á sprungum
- Rétting á ójöfnum veggjum
- Endurbætur á gömlum veggjum
Svona vinnum við
Svona gengur spartlið fyrir sig
- Skref 1
Mat á undirlagi
Við athugum hvort veggurinn er sléttur og hvar sprungur leynast.
- Skref 2
Lagfæringar
Við skröpum gömul lög og lögum sprungur.
- Skref 3
Spartl
Við berum á massa og réttum af yfirborðið.
- Skref 4
Afhending
Við förum saman yfir yfirborðið.

Verðskrá
Verð fyrir spartl og lagfæringar
Sláðu inn flatarmál við þau verk sem þú þarft og kostnaður hvers liðar og heildin birtast strax.
Spartl
Spartl á samskeyti gipsplatna
glertrefjanet og tvær umferðir af massa
Endurbætur á gömlum veggjum
skröpun, sprungur lagaðar, veggir réttir af og fleira
Verðin eru fyrir vinnu eingöngu, án efnis. Niðurstaðan er áætlun og endanlegt tilboð fer eftir flatarmáli, ástandi undirlags og umfangi verks.
Algengar spurningar
Spurningar um spartl og lagfæringar
Hver er munurinn á spartli á heilan vegg og á samskeyti?
Á samskeytum vinnum við aðeins á mótum platnanna. Við leggjum í net og berum á tvær umferðir af massa (4.000 kr/m). Spartl á heilan flöt er sérstakur liður í verðskránni.
Af hverju er spartl misdýrt?
Verðið fer eftir ástandi veggja og umfangi verksins. Þess vegna er verðbilið í verðskránni 3.500–5.000 kr/m².
Hvenær þarf að endurbæta gamla veggi?
Þegar veggirnir eru með sprungur eða ójöfnur, eða þarf að skrapa þá. Þá byrjar verðið á 5.000 kr/m².
Má mála strax eftir spartl?
Nei, massinn þarf fyrst að þorna. Hvenær má byrja að mála ákveðum við þegar verkið er unnið.
Takið þið bæði spartl og málun?
Já, við getum gert eitt tilboð í bæði verkin.
Lýstu verkinu, við gerum tilboð
Segðu okkur hvað á að gera, hvar verkið er, um það bil hve marga fermetra það nær yfir og hvenær þú vilt byrja.
- +354 769 6246
- [email protected]
- Reykjavík, Keflavík, Selfoss og nágrenni



